Загрузка страницы

Stúfur — Baggalútur og Friðrik Dór

Jólalag Baggalúts 2017 fjallar um hinn ofurflippaða jólasvein Stúf Grýlu– og Leppalúðason. Lag og texti: Bragi Valdimar Skúlason | Myndband: Hugleikur Dagsson
Hér er lagið á Spotify: https://open.spotify.com/track/1CEU0LnobnsmzS86Ly68eE
Flutningur:
Guðmundur Pálsson, söngur
Karl Sigurðsson, söngur
Friðrik Dór Jónsson, söngur
Bragi Valdimar Skúlason, raddir
Guðmundur Kristinn Jónsson, forritun

Samúel Jón Samúelsson, básúna
Óskar Guðjónsson, saxófónn
Kjartan Hákonarson, trompet
Guðmundur Pétursson, gítar
Helgi Svavar Helgason, trommur, slagverk
Guðmundur Óskar Guðmundsson, bassi
Sigurður Guðmundsson, raddir, clavinet
Tómas Jónsson, píanó, hljómborð
Dísa Jakobsdóttir, raddir

Stjórn upptöku:
Guðmundur Kristinn Jónsson

Upptökur:
Friðjón Jónsson, Sigurður Guðmundsson

Hljóðblöndun og hljómjöfnun:
Guðmundur Kristinn Jónsson

Hljóðritað í Hljóðrita í Hafnarfirði, nóvember 2017
TEXTI:

Það er pínupínulítið, pínulítið sem ég þarf að segja þér.
Pínupínulítið, pínulítið sem ég verð að deila með þér.
Við komum auga' á agnarsmáan mann.
Ótrúlegt við skyldum greina hann.

Hann var pínupínulítill, varla mikið meira' en nokkur kílógrömm.
Sem var pínulítið skrítið, án þess að ég sé með neina smæðarskömm.
Hann fór um langan veg að finna mig,
fann sig knúinn til að minna' á sig:

Ég er frábær gaur, fáránlega nettur.
Ætti' að vera til á hverju heimili.
Frábær gaur, fyrirmyndareintak.
Kem og verð með vesen í des.

Stúfur, já Stúfur — hann kemur í kvöld.
Takið þið skótauið til.
Stúfur, já Stúfur — hann kemur í kvöld.
Ég mæti á svæðið með sjampó og spil

Ég var pínupínulítið hvumsa en ég lagði saman tvo og tvo.
Var pínupínulítið hikandi' en ég sagði samt og spurði svo:
Hvað ætlar þú að verða litli vin
ef þú verður stór, eins og við

Frábær gaur, fáránlega nettur.
Ætti' að vera til á hverju heimili.
Frábær gaur, fyrirmyndareintak.
Kem og verð með vesen í des.

Brilljant gaur, gríðarlega nettur.
Ætti' að vera til á hverju heimili.
Toppnæs gaur, tímamótaeintak.
Kem og verð með desemberves.
Stúfur, já Stúfur — hann kemur í kvöld.
Grísirnir reka upp gól.
Stúfur, já Stúfur — hann kemur í kvöld.
Þá gef ég þeim öllum gleðileg jól.
Ljúfasti Stúfurinn lendir í kvöld.
Komið lausafjármunum í skjól.

Stúfur, já Stúfur — hann kemur í kvöld.
Þá verða mömmurnar spól.
Stúfur, já Stúfur — hann kemur í kvöld.
Þá gef ég þeim öllum gleðileg jól.

Видео Stúfur — Baggalútur og Friðrik Dór канала Baggalútur
Показать
Комментарии отсутствуют
Введите заголовок:

Введите адрес ссылки:

Введите адрес видео с YouTube:

Зарегистрируйтесь или войдите с
Информация о видео
7 декабря 2017 г. 14:32:26
00:03:15
Яндекс.Метрика