Aðventutónleikar Sinfóníunnar á RÚV
#sinfó #Harpa #togetherathome #togetherapart
Sinfóníuhljómsveit Sinfóníuhljómsveit Íslands býður upp á hátíðlega aðventutónleika í beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV og Rás 1 fimmtudaginn 10. desember kl. 20:05. Á tónleikunum flytur hljómsveitin fjörugan konsert fyrir tvær fiðlur eftir Vivaldi, hátíðlegar óperuaríur eftir Händel og sinfóníu nr. 25 eftir Mozart.
Sópransöngkonan Álfheiður Erla Guðmundsdóttir þreytir nú frumraun sína með hljómsveitinn, en hún hefur vakið feykilega athygli undanfarin ár fyrir glæsilegan og fágaðan söng. Álfheiður er þegar farin að hasla sér völl á óperusviðinu, hefur m.a. sungið í Staatsoper Berlín og við óperuhúsið í Basel, þar sem hún hlaut einróma lof gagnrýnenda.
Hjónin Vera Panitch og Páll Palomares leika bæði í Sinfóníuhljómsveit Íslands og eru meðal fremstu fiðluleikara landsins. Páll lék eftirminnilegan einleik á tónleikunum Klassíkin okkar í september og Vera vann til verðlauna í kammertónlistarkeppni Danska útvarpsins nú fyrir skemmstu.
Hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason, sem er löngu orðinn landskunnur fyrir tónsmíðar sínar og hljómsveitarstjórn og hlaut nýverið ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands tilnefningu til hinna virtu Grammy-verðlauna.
Í ljósi núgildandi samkomutakmarkana verður ekki hægt að bjóða gestum í sal en tónleikarnir verða í beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV ásamt því að þeim verður útvarpað í beinni á Rás 1.
Видео Aðventutónleikar Sinfóníunnar á RÚV канала Iceland Symphony Orchestra

Показать
Комментарии отсутствуют
Информация о видео
15 декабря 2020 г. 2:35:06
01:00:42
Другие видео канала
Iceland Symphony Tours JapanHelga Þóra æfir fyrir Star Wars bíótónleikaSælustraumar frá Hörpu // Streaming from Harpa Concert HallFantasía byggð á stefjum úr sögu Rásar 1Georg Friedrich Händel: Let the Bright Seraphim (Álfheiður Erla Guðmundsdóttir soprano)Processions - Daníel Bjarnason and Víkingur ÓlafssonHeyr, himna smiður eftir Þorkel Sigurbjörnsson (horndeild Sinfóníunnar)Heimsending í streymi – Stefán Jón og Anna GuðnýUngir einleikarar stíga á sviðPeter og Páll eru tilbúnir fyrir Star Wars bíótónleikanaHjaltalín: Feels like SugarHeimsending í streymi – Sigrún og Bryndís HallaAnna Thorvaldsdottir | Composer-in-ResidenceDenis Kozhukhin leikur Lýrísk stykki eftir GriegJón Nordal: Hvert örstutt spor (Hallveig Rúnarsdóttir)Sæunn leikur Bow to String eftir Daníel BjarnasonGustav Mahler: Sinfónía nr. 10 (brot)Felix Mendelssohn: Friður, friður frelsarans (arr. Þórður Magnússon)Georg Friedrich Händel: Lascia ch’io pianga (Álfheiður Erla Guðmundsdóttir soprano)Meredith Willson: Nú minnir svo ótal margt á jólin