Загрузка...

Starfsmannahús - hostel - sumarhús - frístundahús - 12 herbergi - gámahús 180 fm. ytra mál.

Um er að ræða 9 gámahús - hvert þeirra er 5.9m á lengd og 2.3m á breidd eða 13.6 fm. Gámahúsin eru því 122 fm. að ytra máli.
Þeim er raðað þannig að 4 hús mynda aðra hliðina og er steyptur grunnur í miðunni - einskonar anddyri - og er það rými á stærð við eitt gámahús.
Því næst er um 40 fm alrými. og hinum megin við það eru 5 gámahús sem samanstanda af einni einingu með þremur sturtum og aðstöðu fyrir þvottavélar og þurrkara. 1 eining þar sem eru þrjú klósett, tvær pissuskálar, fjórir vaskar og þurrkaðstaða - þar er einning hitakútur - virkni hans hefur ekki verið prófuð. Ein eining þar sem er aðstaða fyrir eldhústæki og svo tvær einingar þar sem eru tvö herbergi í hvoru þeirra.
Alls eru herbergin 12 en þrjú þeirra eru ekki með útsýnisglugga.
Rafmagnstafla fylgir með, slökkvitæki, ljósabúnaður en aðeins fáeinir rafmagnsofnar.
Þakið er álklætt en einingarnar voru líklega teknar í notkun árið 1992 eða 1993. Ekki er að sjá annað en að vandað hafi verið við efnisval, ekki að sjá neitt ryð í þaki eða öðru því tengdu. Einnig lítur út fyrir að skipt hafi verið um flesta glugga fyrir einhverjum árum. Á milli eininganna er steypt plata sem hefur verið flísalögð. Gámaeiningarnar standa á steyptum leiðurum sem fylgt geta með. Það gerir steypta platan líka ef möguleiki er að að endurnýta hana.
Ekki er annað að sjá en að allir herbergisgluggar séu í lagi. Húseiningarnar eru tilvaldar til að klæða að nýju og þannig gerbreyta útliti og ásýnd.
Þetta er kjörið verkefni fyrir samhentan hóp eða fjölskyldu til að búa til sumarhús, hostel, ferðaþjónustuaðstöðu, nú eða nýta sem vinnubúðir eða aðstöðu fyrir starfsmenn. www.efnisveitan.is - efnisveitan@efnisveitan.is s 8981000

Видео Starfsmannahús - hostel - sumarhús - frístundahús - 12 herbergi - gámahús 180 fm. ytra mál. канала Efnisveitan
Яндекс.Метрика
Все заметки Новая заметка Страницу в заметки
Страницу в закладки Мои закладки
На информационно-развлекательном портале SALDA.WS применяются cookie-файлы. Нажимая кнопку Принять, вы подтверждаете свое согласие на их использование.
О CookiesНапомнить позжеПринять